Björn Steinar til Stjörnunnar

Ungmennafélag Grindavíkur Körfubolti

 Björn Steinar Brynjólfsson hefur ákveðið að ganga til liðs við Stjörnuna og mun því leika í bláu á næstunni.

Yfirlýsing stjórnar körfuknattleiksdeildar UMFG:

“Körfuknattleiksdeild Grindavíkur, skrifaði í dag undir félagsskipti fyrir Björn Steinar Brynjólfsson en hann í gengur í raðir Stjörnunnar.
 
Þar sem Björn Steinar er borinn og barnfæddur Grindvíkingur og hefur leikið allan sinn feril í Grindavík, þá finnst okkur erfitt að sjá á eftir honum. Björn Steinar hefur verið mikilvægur hlekkur í liði Íslandsmeistara síðastliðinna tveggja ára og átti m.a. stóran þátt í sigrinum á móti ÞórÞorlákshöfn sem tryggði titilinn 2012.
 
Viðskilnaðurinn milli Bjössa og Kkd. Grindavíkur er á góðum nótum en vissulega var Bjössi ekki alveg sáttur við það hlutverk sem hann fékk. Við sýnum því fullan skilning og óskum honum alls hins besta á nýjum vígstöðvum.
 
Dyrnar að Grindavík munu ávallt standa Bjössa opnar.”