Bikarhelgi yngri flokka

Ungmennafélag GrindavíkurKörfubolti

Bikarúrslit KKÍ verða haldin í Grindavík næstu helgi í umsjón körfuknattleiksdeildar Grindavíkur. Leikið verður til úrslita í Röstinni í öllum flokkum nema unglingaflokk karla sem leikinn verður stakur síðar vegna kærumáls á fyrri stigum keppninnar sem seinkuðu framgangi undanúrslitaleikja.

Allir leikir helgarinnar verða sýndir beint á sporttv.is en dagskrá helgarinnar er eftirfarandi:

Laugardagur 8. mars
10:00 – 9. flokkur drengja · Njarðvík – ÍR 
12:00 – 10. flokkur stúlkna · Haukar – Keflavík
14:00 – 11. flokkur drengja · Breiðablik – Gindavík/Þór Þ.
16:00 – Unglingaflokkur kvenna · Haukar – Keflavík

Sunnudagur 9. mars
10:00 – 9. flokkur stúlkna· Keflavík – Hrunamenn
12:00 – 10. flokkur drengja · Keflavík – Njarðvík
14:00 – Stúlknaflokkur · Haukar – Keflavík
16:00 – Drengjaflokkur · Haukar – KR