2 leikir, 2 sigrar!

Ungmennafélag GrindavíkurKörfubolti

Góð byrjun okkar manna heldur áfram en eftir tvo erfiða fyrstu leiki í Domions-deildinni erum við með tvo sannfærandi sigra í farteskinu og í kvöld voru það Snæfellingar sem voru örugglega lagðir af velli, 110-102.

Skv. tölfræðinni var Sammy Zeglinski okkar besti maður og um tíma virtist hann vera algerlega óstöðvandi!  Eftir 3 leikhluta var hann búinn að hitta 8 af 11 3-stiga skotum sínum en sennilega var hann farinn að þreytast og endaði “ekki með nema” 50% nýtingu í 3-stiga…..  Auk þess gaf hann 8 stoðsendingar.  Þetta eru frábærar fréttir fyrir okkur ef hann er að finna sinn leik.

Aaron heldur áfram að heilla og endaði með 28 stig, 9 fráköst, 4 stoðsendingar og 2 stolna bolta.

Lalli og Siggi Þorsteins voru stigahæstir Íslendinganna með 12 stig og Jói var með 9 stig en auk þess gaf Jói 7 stoðsendingar og tók 7 fráköst.

Hýfa!!!

 

ÁFram Grindavík!