Leikreglur í 9. flokki

– Aldur: 14 ára eða 9. bekkur grunnskóla.
– Hálfleikur: 5 mínutur, 1 mínúta milli leikhluta.
– Leiktími: 4 x 8 mínútur.
– Leikhlé: 2 í hálfleik.

Ekki er heimilt að leika svæðisvörn í 9. flokki, hvorki á varnar- né sóknarvelli. Verði lið uppvíst að því að spila ólöglega vörn skal stöðva leikinn og aðvara þjálfara brotlega liðsins. Við endurtekin brot skal dæma tæknivillu (C) á þjálfara brotlega liðsins.
7 leikjahæstu leikmönnum A liðs er óheimilt að leika með B liði.
14 leikjahæstu leikmönnum A og B liða samanlagt, er óheimilt að leika með C liði o.s.frv.

Deildarkeppni
Í 9. flokki skal leikið í deildarkeppni heima og að heiman. Leika skal í einum riðli (deild) þegar félög eru 11 eða færri en í tveimur riðlum ef félög eru 12 eða fleiri.
Mótanefnd KKÍ skal útfæra keppnisfyrirkomulag verði félög sem taka þátt 19 eða fleiri. Ef leikið er í tveimur eða fleiri deildum skulu félög skiptast í deildir sem hér segir: Árangur í 8. flokki árið á undan skal gilda til að raða. Þau lið sem röðuðu sér efst að lokinni riðlakeppni í 8. flokki fara í 1. deild, önnur lið keppa í 2. deild, og ef með þarf 3. og 4. deild.
Hvert lið skal leika 18 leiki í deildarkeppni yfir tímabilið óháð fjölda þátttökuliða