Viktoría Sól skrifar undir nýjan samning við Grindavík

Ungmennafélag Grindavíkur Knattspyrna

 Miðjumaðurinn Viktoría Sól Sævarsdóttir hefur skrifað undir nýjan tveggja ára samning við Grindavík eða út tímabilið 2024. Viktoría hefur leikið með Grindavík sl. tvö tímabil og hefur verið með betri leikmönnum liðsins á þeim tíma.

Viktoría Sól kemur úr Sandgerði og er 22 ára gömul. Hún hefur leikið 38 leiki í deild og bikar og skorað í þeim 2 mörk. Viktoría tók aftur fram skónna með Grindavík sl. sumar og stóð sig afar vel á miðjunni í Lengjudeild kvenna.

„Viktoría Sól stóð sig mjög vel hjá Grindavík á síðustu leiktíð og það eru frábær tíðindi að hún ætli að taka slaginn með okkur áfram,“ segir Steinberg Reynisson, formaður meistaraflokksráðs kvenna hjá Grindavík.

„Við finnum mikinn meðbyr með kvennafótboltanum í Grindavík og það verður frábært að hafa Viktoríu með okkur frá fyrsta degi á næsta keppnistímabili. Ég trúi því að hún eigi eftir að verða lykilleikmaður hjá Grindavík á næstu leiktíð.“

Knattspyrnudeild Grindavíkur lýsir mikilli ánægju með að Viktoría Sól verði áfram í herbúðum félagsins til næstu ára.

Áfram Grindavík!