Vel mætt í grillveisluna hjá leikmönnum Grindavíkurliðsins

Ungmennafélag GrindavíkurKnattspyrna

Leikmenn knattspyrnuliðs Grindavíkur buðu stuðningsmönnum sínum í grillveislu við Gula húsið í gærkvöldi og buðust jafnframt til að endurgreiða þeim aðgangseyrinn í sárabætur fyrir skelfilega frammistöðu gegn FH í vikunni.

Stuðningsmenn Grindavíkur voru ánægður með framtakið hjá leikmönnunum en hátt í 50 þeirra mættu í grillið þrátt fyrir að margir Grindvíkingar séu í útilegu þessa helgina. Enginn þeirra vildi fá endurgreitt en tóku í staðinn loforð af leikmönnunum að svona frammistaða endurtaki sig ekki í sumar!

Næsti leikur Grindavíkurliðsins er á mánudaginn gegn Fram á Laugardalsvelli kl. 19:15 og eru stuðningsmenn liðsins hvattir til þess að mæta.