Unglingadómaranámskeið í knattspyrnu var vel sótt í Gulahúsinu

Ungmennafélag GrindavíkurKnattspyrna

Yfir 20 unglingar og eitt foreldri mættu á unglingadómaranámskeið í Gulahúsinu sem haldið var af KSÍ í samvinnu við Knattspyrnudeild UMFG þann 17.mars.

Námskeiðið stóð í um tvær og hálfa klukkustund og var öllum opið og lýkur námskeiðinu með skriflegu prófi 24.mars. Á námskeiðinu fór Sigurður Óli Þórleifsson FIFA dómari yfir knattspyrnulögin en auk þess var einnig farið yfir ýmis konar kynningarefni, fræðsluefni, skýringar og skýringarmyndir.

Unglingarnir tóku virkan þátt í umræðum og voru t.d skiptar skoðanir á nýrri túllku á rangstöðureglunni.

Myndir frá námskeiðinu: