Tékkneskur framherji til Grindavíkur

Ungmennafélag Grindavíkur Knattspyrna

Knattspyrnudeild Grindavíkur hefur samið við tékkneska framherjann Michal Pospisil til næstu tveggja ára.

 

Hann hefur verið til reynslu hjá félaginu að undanförnu og skoraði m.a. í tvígang í æfingaleik gegn Stjörnunni um helgina.

Pospisil er 31 árs og reynslumikill framherji sem hefur leikið í efstu deild í þremur löndum. Hann hefur leikið 186 leiki í efstu deild í Tékklandi og skorað 40 mörk m.a. með Spörtu Prag þar sem hann varð meistari 2003, 48 leiki með Hearts í Skotlandi og skoraði 12 mörk og svo St. Truiden í Belgíu (16/2). Nú síðast lék hann í Bohemians Prag í Tékklandi. Þá hefur hann leikið 21 landsleik fyrir U21 lið Tékklands (5 mörk) og varð Evrópumeistari með félaginu 2002.

Pospisil mun leysa markakóng Íslandsmótsins í fyrra, Gilles Mbang Ondo, af hólmi í fremstu víglínu Grindavíkurliðsins.