Stórsigur gegn KF

Ungmennafélag GrindavíkurKnattspyrna

Rétt í þessu lauk leik Grindavíkur og KF á Ólafsfirði.  Leiknum lauk með frábærum 7 marka sigur hjá okkar mönnum, 7-0.  Baráttan um sæti í efstu deild er að stórum hluta tengt markatölu en Víkingar sem voru með einnig með 11 mörk í plús fyrir umferðina sigruðu Völsung 16-0!

Það stefnir því allt í mjög spennandi lokaumferð eftir viku.  

Staðan fyrir lokaumferðina:

Lið Stig Mörk í plús
Fjölnir 40 12
Víkingur 39 27
Grindavík 39 18
Haukar 39 13
BÍ/Bolungarvík 37 6

Igor Stanojevic gerði 4 mörk í leiknum, Magnús Björgvinsson 2 og Juraj Grizelj eitt. 

Grindavík á enn góða möguleika á að komast í Pepsi deildina en þurfa að treysta á að önnur lið misstígi sig.  En auðvitað þarf fyrst að vinna leikinn gegn KA sem er ekkert gefið.  Sá leikur fer fram á Grindavíkurvelli næstkomandi laugardag klukkan 14:00.  Á sama tíma fer fram leikur Þróttar og Víkings, Leiknir fær Fjölni í heimsókn og Völsungur Haukar.