Stórleikur í dag

Ungmennafélag GrindavíkurKnattspyrna

Grindavík og ÍA mætast á Grindavíkurvelli klukkan 16:00 í dag.

Öll umgjörðin er hin glæsilegasta, frábært veður, hátíð í fullum gangi, flestir bátar í landi, stöð2sport með beina útsendingu og von á fjölmörgum áhorfendur.  Það er óskandi að leikurinn sjálfur verði á sömu nótum og hvet ég leikmenn liðsins að fagna sjómönnum með fyrsta sigri liðsins í Pepsi deildinni í ár.

Lið Akranes hefur gengið mjög vel í byrjun móts en alls ekki ósigrandi, Gaui Þórðar þekkir eitthvað til þeirra og á einhver vopn gegn þeim.

Allir eru hvattir til að mæta og styðja við Grindavíkurliðið í sólinni í dag.