Stakkavík býður á völlinn

Ungmennafélag GrindavíkurKnattspyrna

Lokaumferðin í Pepsi deild karla fer fram á morgun.  Grindavík mætir þá Fylki klukkan 14:00.  Ókeypis er á völlinn því Stakkavík ætlar að bjóða öllum á leikinn.  

Annað kvöld er svo hið árlega lokahóf knattspyrnudeildar í íþróttahúsinu. Borðapantanir eru í síma 426 8605 eða á umfg@centrum.is. Dagskráin er stórglæsileg:

• Húsið opnar kl. 19:30.
• Borðhald hefst kl. 20:00.
• Skemmtiatriði.
• Ingibjörg (BG og Ingibjörg) syngur nokkur af sínum vinsælustu lögum.
• Happdrætti. Aðalvinningur gjafabréf frá Úrval-Útsýn.
• Verðlaunaafhending.
• Reiðmenn vindanna, SS SÓL ásamt Helga Björns.
• Veislustjóri: Kristín Pálsdóttir.

Miðaverð:
• Matur og dansleikur kr. 4.900
• Dansleikur kr. 2.500
• Aldurstakmark 18 ára.