Pepsi deild karla hefst á sunnudaginn með leik Grindavíkur og FH í Kaplakrika. Í dag var spá forráðamanna liða í Pepsi deild birt.
Grindavík fékk 128 stig og lenda í 9.sæti samkvæmt spánni. KR er spáð sigri en Keflavík og Selfoss falli um deild.
Fjölmiðlar hafa einnig verið að spá og spekúlera og lendir Grindavík í 9. sæti hjá Fréttablaðinu og Stöð2sport og 10. sæti hjá fótbolti.net. Morgunblaðið birtir spá sína í fyrramálið.