Skrifað undir samninga við Vísi, Þorbjörn og TM

Ungmennafélag GrindavíkurKnattspyrna

Knattspyrnudeild Grindavíkur skrifaði í hádeginu undir samstarfssamninga við þrjá af sínum öflugustu bakhjörlum undanfarin ár, útgerðarfélögin Vísi og Þorbjörn í Grindavík og svo TM.

Allir samningarnir eru til tveggja ára en þessi þrjú fyrirtæki eiga það sameiginlegt að hafa stutt vel við bakið á fótboltanum í Grindavík í gegnum tíðina.

Sigurður Viðarsson forstjóri TM mætti til Grindavíkur til þess að skrifa undir samninginn við knattspyrnudeildina.

Pétur H. Pálsson forstjóri Vísis hf. og Eiríkur Tómasson forstjóri Þorbjörns hf. skrifuðu undir samninginn fyrir hönd sinna fyrirtækja.

Myndin var tekin við undirskriftina í dag en á henni eru fulltrúar knattspyrnudeildar, TM, Vísis og Þorbjarnar ásamt Róberti Ragnarssyni bæjarstjóra.