Sigurjón og Þorbjörg valin best hjá knattspyrnudeildinni   

Knattspyrna Knattspyrna

Knattspyrnudeild Grindavíkur verðlaunaði í gær þá leikmenn meistaraflokka félagsins sem stóðu upp úr hjá félaginu á keppnistímbilinu 2020. Sigurjón Rúnarsson og Þorbjörg Jóna Garðarsdóttir voru valin best á Grindavík í ár. Það eru leikmenn, þjálfarar og stjórnarfólk sem kjósa um bestu leikmenn hjá hvoru liði fyrir sig.

Sigurjón Rúnarsson lék 19 leiki með karlaliði Grindavíkur í Lengjudeildinni og Mjólkurbikarnum í sumar. Hann skoraði tvö mörk í sumar og lék stórt hlutverk í hjarta varnarinnar hjá Grindavík. Sigurjón er tvítugur að aldri og var fyrirliði liðsins í nokkrum leikjum í sumar. Hann tók jafnt og þétt miklum framförum í sumar og lék sinn 50 leik fyrir Grindavík í deild og bikar í sumar. Sigurjón hefur verið valin í yngri landslið Íslands og á að baki 2 leiki með U19 ára liði Íslands. Grindavík hafnaði í 4. sæti í Lengjudeildinni í sumar.

Þorbjörg Jóna Garðarsdóttir spilaði stórt hlutverk í hjarta varnarinnar í liði Grindavíkur sem fagnaði sigri í 2. deild kvenna. Þorbjörg Jóna kemur frá Vopnafirði en hefur leikið með Grindavík undanfarin tvö tímabil. Hún lék 17 leiki með Grindavík í sumar í deild og bikar og skoraði 1 mark. Hún var fyrirliði í nokkrum leikjum í sumar og tók að sér stórt leiðtogahlutverk í liðinu. Þorbjörg var í stóru hlutverki í vörninni hjá Grindavík sem fékk fæst mörk á sig allra liða í 2. deild kvenna. Þorbjörg Jóna, sem er 23 ára gömul, hefur skrifað undir nýjan samning við Grindavík og mun leika með félaginu í Lengjudeild kvenna næstu tvö tímabil.

Veitt voru önnur verðlaun á lokahófinu:

Efnilegasti leikmaður karla: Oddur Ingi Bjarnason
Efnilegasti leikmaður kvenna: Unnur Stefánsdóttir

Mikilvægasti leikmaður karla: Aron Jóhannsson
Mikilvægasti leikmaður kvenna: Eva Lind Daníelsdóttir

Markahæsti leikmaður karla: Sigurður Bjartur Hallson – 8 mörk
Markahæsti leikmaður kvenna: Birgitta Hallgrímsdóttir – 16 mörk

Mark ársins hjá karlalið Grindavíkur: Oddur Ingi Bjarnason gegn Keflavík, 3-2

Mark ársins hjá kvennaliði Grindavíkur: Una Rós Unnarsdóttir gegn ÍR, 1-0.

Efnilegustu leikmenn Grindavíkur 2020: Oddur Ingi Bjarnason og Unnur Stefánsdóttir

Mikilvægustu leikmenn Grindavíkur 2020: Aron Jóhannsson og Eva Lind Daníelsdóttir.

Markahæstu leikmenn Grindavíkur 2020: Sigurður Bjartur Hallsson og Birgitta Hallgrímsdóttir.