Sigurbjörn Hreiðarsson hættir sem þjálfari Grindavíkur

Ungmennafélag Grindavíkur Knattspyrna

Sigurbjörn Örn Hreiðarsson mun láta af störfum sem þjálfari meistaraflokks Grindavíkur í knattspyrnu að loknu tímabilinu í Lengjudeild karla. Sigurbjörn tók við Grindavík haustið 2019 eftir að liðið féll úr efstu deild.

Liðið varð í 4. sæti í Lengjudeildinni á síðustu leiktíð og situr liðið nú í 7. sæti á yfirstandi leiktíð þegar þrír leikir eru eftir. Aðstoðarþjálfarinn Ólafur Brynjólfsson mun einnig láta af störfum að loknu keppnistímabilinu. Samningur þeirra beggja rennur út að loknu yfirstandandi tímabili og var það sameiginleg ákvörðun þjálfara og stjórnar Knd. Grindavíkur að endurnýja ekki samstarfið.

„Þetta hefur verið góður tími í Grindavík. Hér er frábær aðstaða, flott umgjörð og mjög skemmtilegur leikmannahópur. Sumarið hefur því miður verið svolítið stöngin út hjá okkur hvað varðar úrslit. Við fórum vel af stað og komum okkur í góða stöðu til að berjast um sæti í efstu deild. Það hefur hins vegar fátt fallið með okkur á síðustu tveimur mánuðum. Við þjálfarateymið fundum að verkefnið var ekki á réttri leið og óskuðum því ekki eftir því að halda áfram,“ segir Sigurbjörn Hreiðarsson.

Þrír leikir eru eftir af keppnistímabilinu í Lengjudeild karla. „Við förum með góðar minningar frá Grindavík og ætlum okkur að enda tímabilið með jákvæðum hætti,“ bætir Sigurbjörn við.

Stjórn Knd. Grindavíkur vill koma á framfæri kærum þökkum til Sigurbjörns og Ólafs fyrir gott samstarf. Framundan eru þrír spennandi leikir á tímabilinu og munum við kveðja þjálfarateymið á lokahófinu þann 18. september.

Leit af eftirmönnum þeirra Sigurbjörns og Ólafs mun hefjast að loknu keppnistímabili.