Grindavík nældi í sín fyrstu stig í 1.deildinni með góðum sigri á Haukum á föstudaginn.
Haukar sigruðu í fyrstu umferðinni og hafa verið spáð góðu gengi í deildinni í sumar. Það lá því í loftinu að þetta yrði erfiður útileikur. Grindavík sigraði hinsvegar leikinn 1-0 þar sem Jordan Edrigde skoraði markið á 34. mínútu. Undir lokinn lá nokkuð á okkar mönnum en vörnin og Óskar héldu velli.
Víkingur og Selfoss gerðu einnig jafntefli og er deildin mjög jöfn eftir tvær umferðir. BÍ/Bolungarvík er eina liðið sem hefur unnið báða sína leiki en við fáum þá í heimsókn í næstu umferð. Leikurinn fer fram laugardaginn 25. maí klukkan 14:00 á Grindavíkurvelli