Risapottur um helgina

Ungmennafélag GrindavíkurKnattspyrna

Við viljum minna á getraunastarf knattspyrnudeildar Grindavíkur þar sem fólk kemur og tippar á laugardögum yfir nýmöluðu kaffi og ferskum snúðum frá Hérastubbi.  Um helgina er nefnilega risapottur og 240 milljónir í pottinum og því til mikils að vinna.

Þrettán réttir hafa nokkrum sinnum dottið inn í gulahús og hver veit nema einn slíkur komi um helgina.