Í tilefni af því ætlum við að opna getraunaþjónustuna í gula húsinu um helgina, opið verður frá kl. 11.00 – 13.00 á laugard. og verður það opnunartíminn í vetur þar til annað verður tilkynnt.
Við ætlum að selja hlut í stórum seðli um helgina sem allir geta keypt sig inní! Seðillinn kostar 157.500 kr.- tæpar og verða því seldir 63 hlutir á 2.500 kr.- í þetta kerfi, fyrstur kemur fyrstur fær!
Svona verður seðillinn (opinn seðill)
1. Skotland – Serbía
2. Brentford – Colchester
3. Bury – Preston
4. Crewe – Tranmere
5. Doncaster – Oldham
6. Hartlepool – Carlisle
7. Notts C. – Shrewsbury
8. Scunthorpe – Sheff.Utd.
9. Swindon – L. Orient
10. Walsall – MK Dons
11. Yeovil – Bournemouth
12. Northamp – AFC Wimbl.
13. Port Vale – Rotherham
Eins og áður segir þá getur hver sem er verið með í þessu fyrir einungis 2.500 kr.- Þetta er bara eins og að lotta.
Kannski fáum við 13 rétta og góðan pening! Kannski 9 rétta og ekkert! Komdu og fáðu þér kaffi með okkur upp í gula húsi og meðlæti frá Hérastubb bakara og taktu þátt með okkur. Þetta hleypir upp spennunni í landsleikjahelginni sem er oftar en ekki frekar óspennandi í boltanum. Svo má ekki gleyma því að knattspyrnudeildin fær hærri prósentu af seldum röðum upp í gula húsi en þeim röðum sem seldar eru í sölukössunum og einkatölvum.
Allir velkomnir