Risapottur á laugardaginn

Ungmennafélag GrindavíkurKnattspyrna

Enn einn risapotturinn hjá Íslenskum Getraunum verður næsta laugardag, 210 milljónir í pottinum. 

Um síðustu helgi voru tveir með 13 rétta í Grindavík, sameiginlegi risakerfisseðillinn og Jón Gísla.  En það voru um tvö þúsund aðrir sem giskuðu á rétt í það skipti þannig að potturinn dreifðist víða.

Hægt verður að kaupa hlut í risakerfisseðil vikunnar með því að senda póst á umfg@centrum.is og leggja inn á reikning 0143-05-60020 kt 640294-2219.  Sjötíu hlutir verða seldir en hlutir í tveimur síðustu seðlum seldust upp og er því um að gera að drífa sig til að vera með.