Ray Anthony þjálfar stelpurnar áfram

Ungmennafélag Grindavíkur Knattspyrna

Gengið var í gærkvöld frá ráðningu á Ray Anthony Jónssyni sem þjálfara meistaraflokks kvenna fyrir komandi tímabil. Ray hefur þjálfað kvennaliðið síðustu 2 ár. Í fréttatilkynningu frá kvennaráði UMFG kemur fram að unnið sé í að byggja upp nýjan kjarna af ungum og efnilegum heimastúlkum í bland við nokkra eldri leikmenn. Þeirra hlutskipti eftir sumarið hafi verið að falla niður um deild eftir æsispennandi sumar. Því sé það þeirra markmið að komast strax aftur upp.

Hvetjum við ykkur að vera dugleg að fylgjast með stelpunum á komandi tímabili og óskum Ray góðs gengis.

Á meðfylgjandi myndum skrifa Ray og Petra Rós formaður kvennaráðs undir samninginn.