Fastur liður á föstudögum á fótbolti.net er sjónvarpsþátturinn “Á heimavelli” þar sem leikmenn liðanna kynna sinn bæ.
Í dag er komið að Grindavík og tóku Óskar Pétursson og Óli Baldur Bjarnason að sér hlutverk stjórnanda þáttarins.
Fara þeir m.a. í Bláa lónið, kíkja á Scotty þar sem hann er að slá völlinn, fara í hellinn til Denna og margt fleira. Hægt er að sjá myndbandið á vef fótbolti.net