Óskar Örn á ný í Grindavík

Ungmennafélag Grindavíkur Knattspyrna

Óskar Örn Hauksson er genginn til liðs við Grindavík og skrifar hann undir samning út keppnistímabilið 2023. Óskar Örn kemur til Grindavíkur frá Stjörnunni en þessi frábæri leikmaður á að baki stórkostlegan feril í íslenskri knattspyrnu.

Óskar Örn, sem er 38 ára gamall, er að snúa aftur til Grindavíkur þar sem hann lék á árunum 2004 til 2006. Hann skipti í kjölfarið yfir í KR þar sem hann lék í fjölda ára áður en hann færði sig yfir til Stjörnunnar fyrir síðasta tímabil. Hann lék alls 57 leiki með Grindavík í deild og bikar á sínum tíma og skoraði 12 mörk fyrir félagið.

„Ég er mjög stoltur af því að fá Óskar Örn aftur til Grindavíkur. Hér átti hann frábæran tíma með félaginu og það mun gleða stuðningsmenn félagsins gífurlega að sjá Óskar aftur í gulu og bláu. Óskar færir liðinu mikið með reynslu sinni og karakter. Með því að fá Óskar til félagsins erum við að senda skýr skilaboð um að Grindavík ætlar að berjast við að komast upp í Bestu deildina á nýjan leik,“ segir Haukur Guðberg Einarsson, formaður Knattspyrnudeildar Grindavíkur.

„Ég er mjög ánægður með að koma aftur til Grindavíkur. Eftir að hafa hitt forráðamenn Grindavíkur og þjálfara þá vissi ég að þetta væri rétt skref fyrir mig á þessum tímapunkti. Það er mikill metnaður hjá Grindavík og mjög spennandi tímabil framundan,“ segir Óskar Örn Hauksson, nýr leikmaður Grindavíkur.

Knattspyrnudeild Grindavíkur fangar endurkomu Óskar Arnar til Grindavíkur og bjóðum við hann hjartanlega velkominn aftur til félagsins. Hér er á ferðinni einn besti leikmaður í sögu efstu deildar á Íslandi og mun hann styrkja lið Grindavíkur mikið fyrir komandi tímabili. Hann bætist við í hóp þeirra leikmanna sem hafa samið við félagið á síðustu vikum en það eru þeir Kristófer Konráðsson, Einar Karl Ingvarsson, Alexander Veigar Þórarinsson og Marko Vardic.

Áfram Grindavík!