Nýjir leikmenn:Haukur og Derek

Ungmennafélag GrindavíkurKnattspyrna

Grindavík bætti við sig tveimur leikmönnum áður en félagskiptaglugginn lokaðist um helgina

Fyrst skal þar nefndan Hauk Inga Guðnason sem kemur frá Keflavík eftir árs frí.  Haukur er 32 ára og hefur áður leikið með Keflavík, Fylki, Liverpool og KR.  

Jafnframt hefur hann leikið 8 landsleiki með A landsliðinu, 9 með U-21, 17 með U-19 og 16 með U-17

Grindavík hefur einnig fengið til sín miðjumanninn Dereck Young sem spilaði áður með Aberdeen,Dunfermline Athletic, Partick Thistle, St. Johnstone.

Dereck er 31 árs skoti og bætist því góðan 5 manna hóp skota sem nú spila með liðinu.

Við bjóðum þessa leikmenn velkomna til Grindavíkur