Lokahóf knattspyrnudeildar UMFG verður haldið laugardaginn 24. september í íþróttahúsinu. Húsið opnar klukkan 19:00. Bíbbinn töfrar fram hlaðborð. Selma Björnsdóttir og Regína Ósk með skemmtiatriði. Veislustjórar: Hjálmar Hallgrímsson og Bjarki Guðmundsson.
* Happdrætti
* Hljómsveitin Brimnes frá Vestmannaeyjum leikur fyrir dansi
Miðaverð á lokahóf og dansleik 7.000 kr.
TAKMARKAÐ MAGN MIÐA.
ATHUGIÐ AÐ EKKI VERÐUR SELT INN Á BALL
20 ára aldurstakmark.
Miðasala fer fram í Gula húsinu og hjá Eiríki framkvæmdastjóra í síma 863-2040 til fimmtudagsins 22. september.