Grindavík og KR mættust á KR vellinum í gær í 32 liða úrslitum Borgunarbikarsins. Lokatölur voru 3-1 fyrir KR
Grindavík byrjaði leikinn mjög vel og voru mun betri fyrstu 20 mínúturnar. Leyfðu heimamönnum að stýra leiknum en beittu hættulegum skyndisóknum með hinn öskufljóta Magnús Björgvinsson í fremstu víglínu. Komst hann m.a. í gott færi en landsliðsmarkvörðurinn lokaði markinu vel.
Grindavík átti nokkur önnur færi en á 30. mínútu varð Daníel Leó fyrir því óhappi að missa boltann á hættulegum stað og Atli Sigurjónsson refsaði með hnitmiðuðu skoti. Daníel Leó er framtíðarleikmaður okkar og spilaði annars mjög vel í gær. Er bara óheppin að þessi fáu misstök sem hann gerir hafa reynst afdrifarík. Það var hinsvegar ánægjulegt að sjá liðsfélaga rífa hann á fætur og hvetja hann áfram.
Annar ungur en jafn efnilegur leikmaður, Stefán Þór Pálsson, átti frábæra rispu í upphafi seinni hálfleiks þar sem hann labbaði í gegnum vörn KR og átti þrumuskot í slánna. Kannski ágætt fyrir okkur að hann skoraði ekki því hann hefði eflaust ekki komist út úr KR heimilinu eftir leikinn án samningstilboðs.
Grindavík var, eins og í upphafi fyrri hálfleiks, mun betri í byrjun seinni hálfleiks. Óli Baldur átti gott skot á markið sem Hannes þurfti að teygja sig langt til að verja en Jósef Kristinn Jósefsson var mættur á fjarstöngina og skoraði, 1-1.
Hættulegasti leikmaður Íslandsmótsins, Baldur Sigurðsson, kom KR yfir nokkrum mínútum síðar og virtust okkar menn brotna nokkuð við það. Heimamenn gengu á lagið og bættu undir lokin þriðja markinu við.
Leikurinn í gær var gott viðmið hvernig liðinu miðar áfram, best að bera sig saman við þá bestu. Ég verð segja fyrir mína parta að ég er bara bjartsýnn á gengi liðs Grindavíkur í sumar. Liðið í ár er mun betra og ólíkt miklu skemmtilegri fótbolti spilaður heldur en í fyrra. Undir lokinn voru flestir leikmanna Grindavíkur ungir og efnilegir og meiri en helmingur uppaldnir Grindvíkingar.
Næsti leikur er gegn Tindastól á sunnudaginn en leikurinn hefur verið færður til Grindavíkur vegna vallaraðstæðna fyrir norðan.