Knattspyrnuskóli UMFG

Ungmennafélag Grindavíkur Knattspyrna

Knattspyrnudeild Grindavíkur verður með Knattspyrnuskóla í sumar fyrir stelpur og stráka í 7. til 4. flokk. Milan Stefán Jankovic og Nihad Cober Hasecic verða skólastjórar í knattspyrnuskólanum í ár, eins og síðasta ár, ásamt aðstoðarfólki.

Skipulagið á knattspyrnuskólanum er með þeim hætti að boðið verður upp tveggja vikna námskeið og hefst skólinn miðvikudaginn 15. júní.

Æfingatímar á Knattspyrnuskólanum eru eftirfarandi:
7. flokkur kk & kvk:
09:00 – 09:55
6. og 5. flokkur kk & kvk:
10:00 – 10:55
4. flokkur kk & kvk:
12:15 – 13:10

Boðið verður upp á 2 námskeið sem skiptast í eftirfarandi tímabil:

2 vikur frá 15. júní til 28. júní
2 vikur frá 29. júní til 12. júlí
Hægt er að velja að vera í eina viku.

Verð í skólann er 9000 kr.- fyrir hvert námskeið. Hægt er að velja að taka eina viku á 5.000 kr.-