Knattspyrnuskóli UMFG

Ungmennafélag GrindavíkurKnattspyrna

Knattspyrnudeild UMFG heldur knattspyrnunámskeið fyrir stráka og stelpur helgina 17. – 19.febrúar

Með stolti kynnum við til sögunnar knattspyrnuskóla knattspyrnudeildar UMFG 2017 fyrir 5.- 3. flokk stráka og stelpna.

Mikil áhersla er lögð á að einstaklingurinn fái að njóta sín í knattspyrnuskólanum. Unnið er í litlum hópum og er markmiðið að hver og einn fá góða innsýn í æfingaheim þeirra sem hafa atvinnu af því að stunda knattspyrnu. Skólinn er ekki síður fyrir markmenn en útileikmenn, enda er boðið upp á sérstaka markmannsþjálfun.

Boðið verður upp á úrvals dagskrá sem inniheldur m.a. æfingar, fyrirlestra, mat, sund, diskó og fleira.

Gisting í boði fyrir þátttakendur í 4.flokki og 3.flokki í Hópsskóla.

Verð fyrir þessa þrjá daga er 10.000 kr.

Gestakennarar og fyrirlesarar:

Heimir Hallgrímsson þjálfar A-landsliðs karla – Þorlákur Árnason þjálfari U17 landsliðs karla – Þórður Þórðarson þjálfari U19 landsliðs kvenna – Ásgerður Stefanía Baldursdóttir leikmaður og fyrirliði Stjörnunnar – Bentína Frímannsdóttir leikmaður Grindavíkur – Eysteinn Húni Hauksson þjálfari í Keflavík – Óli Stefán Flóventsson þjálfari m.fl kk í Grindavík – Róbert Haraldsson þjálfari m.fl kvk í Grindavík – Ægir Viktorsson yfirþjálfari yngri flokka Grindavíkur – Þorsteinn Magnússon markmannsþjálfari – Nihad Cober Hasecic þjálfari hjá Grindavík – Milan Stefán Jankovic þjálfari hjá Grindavík – Óli Baldur Bjarnason heilsunuddari og styrktarþjálfari Grindavíkur – Klemenz Sæmundsson næringarfræðingur – Sigurvin Ingi Árnason sjúkraþjálfari og margir fleiri.

Takmarkaður fjöldi er á námskeiðið og því um að gera að skrá sig sem fyrst.

Nánari upplýsingar og skráning með nafni og kennitölu berist á netföngin aegir@umfg.is og olistefan@umfg.is fyrir 13.febrúar.