Knattspyrnuskóli UMFG verður starfræktur í sumar eins og undanfarin sumur.
Námskeiðin eru opin öllum iðkendum á aldrinum 6-14 ára, bæði piltum og stúlkum. Um er að ræða tvö þriggja vikna námskeið í júní og júlí og eitt tveggja vikna námskeið í ágúst.
Á námskeiðinu verður iðkendum skippt upp eftir aldri og getu þannig að allir fái verkefni við sitt hæfi.
Námskeið fyrir stráka og stelpur:
7.júní – 28.júní
5.júlí – 26.júlí
8.ágúst – 19.ágúst – æft að hætti atvinnumanna
Eldri fyrir hádegi (5.bekkur – 8.bekkur) kl 10:00
Yngri eftir hádegi(1.bekkur – 4.bekkur) kl 13:00
Skráning standa yfir þriðjudag og miðvikudag 7.- 8.júní í Gulahúsi.
Verð er 5.000 kr fyrir þriggja vikna námskeið
Verð á námskeiðið æft að hætti atvinnumanna í ágúst er 6.000 kr
Umsjón með skólanum hafa Anna Þórunn Guðmundsdóttir fyrirliði meistaraflokks kvenna og Scott Ramsay leikmaður meistaraflokks karla auk annara gestaþjálfara