Juraj Grizelj og Margrét Albertsdóttir valin best

Ungmennafélag GrindavíkurKnattspyrna

Lokahóf knattspyrnudeildar Grindavíkur var haldið í gærkveldi með pompi og prakt.  Meðal atriða á lokahófinu var kjör á leikmönnum ársins.  Juraj Grizelj og Margrét Albertsdóttir hlutu þann heiður.

Hjá öðrum flokki karla var Ivan Jugovic markahæstur með 8 mörk í 13 leikjum.  Marinó Axel Helgason var kosinn efnilegastur og Nemanja Latinovic bestur.

Hjá kvennaflokki var Margrét Albertsdóttir markahæst og Ingibjörg Yrsa Ellertsdóttir sýndi mestu framfarir.  

Í efstu þremur sætum um kjör á leikmanni ársins var Þórkatla Albertsdóttir í þriðja sæti, Anna Þórunn Guðmundsdóttir í öðru sæti og Margrét Albertsdóttir sú besta.

Auk þessu fengu Guðrún Gunnarsdóttir, Þórkatla Albertsdóttir og Hanna Dís Gestsdóttir viðurkenningu fyrir frábærar auglýsingar sem þær gerðu fyrir alla heimaleiki og vöktu mikla lukku.

Hjá karlaflokki var Daníel Leó Grétarsson efnilegastur, Stefán Þór Pálsson og Juraj Grizelj voru jafnir með 10 mörk og deildu því markakóngstitlinum.  Í kjöri um besta leikmann sumarsins lenti Jósef Kristinn Jósefsson í þriðja sæti, Jóhann Helgason í öðru og líkt og í kvennaflokki markahæsti leikmaðurinn einnig valinn bestur og hlaut Juraj Grizelj nafnbótina leikmaður ársins.

Myndir af verðlaunahöfum væntanlegar