Jafnt gegn Leikni

Ungmennafélag GrindavíkurKnattspyrna

Annar leikur Grindavíkur í Lengjubikarnum fór fram í gær í Egilshöll þegar þeir mættu Leikni frá Reykjavík

Fyrsti leikurinn Lengjubikarnum fór 0-0 er þeir mættu FH.  Leikurinn í gær endaði einnig í jafntefli þar sem bæði lið skoruðu sitt hvort markið.  Mark Grindavíkur skoraði Tomi Ameobi á 16. mínútu en fyrrum leikmaður Grindavíkur, Andri Steinn Birgisson, jafnaði leikinn á 34. mínútu.

Næsti leikur er gegn Þór fyrir norðan 4.mars í Boganum.

Mynd hér að ofan tók Eva Björk fyrir fótbolti.net og hægt að sjá fleiri myndi úr leiknum á myndasafni