Nýkrýndir íslandsmeistarar í Pepsi deild kvenna, Stjarnan, mætti Grindavíkurliðinu í gær.
Skemmst er frá því að segja að Stjarnan sigraði stórt 7-1. Stjarnan var 1-0 í hálfleik en með öflugum leik í seinni hálfleik völtuðu gestirnir yfir Grindavík. Mark Grindavíkur skoraði Shenka Gordon fimm mínútur fyrir leikslok.
Þegar einn leikur er eftir, á móti Fylki 10 september, er staðan þannig að Grindavík á enn þrjú stig í KR en með mun verri markatölu.