Þá er komið að lokaleik Íslandsmótsins í knattspyrnu 2011. Grindavík sækir ÍBV heim á laugardaginn klukkan 14:00
Leikmenn Grindavíkur munu fara til eyja í dag. Er það gert vegna veðurs því á morgun er spáð allt upp í 30 metrum á sekúndu og ekki hægt að taka áhættu á ferðalagi á laugardaginn.
Veðrið einkenndi einnig leik þessara liða í eyjum í fyrra. Eftir mikinn rokleik endaði Grindavík uppi sem sigurvegari 1-0 þar sem Hafþór Ægir Vilhjálmsson skoraði mark leiksins í fyrri hálfleik.
Fyrri leikur liðanna í sumar fór 2-0 þannig að möguleikinn er svo sannarlega fyrir hendi þó að liðin séu á ólíkum stað á töflunni. Málið er einfalt fyrir okkar menn, sigur í leiknum tryggir þeim áframhaldandi veru í efstu deild.
mynd að ofan er frá Eyjafréttir.is