Herrakvöldið í kvöld !

Ungmennafélag Grindavíkur Knattspyrna

Hið árlega herrakvöld knattspyrnudeildar verður haldið í kvöld í veitingahúsinu Vör.

Að þessu sinni verur bimsalt herrakvöld að hætti Bíbbans en á boðstólum verður glæsilegt sjávarréttahlaðborð. Þema kvöldsins verður Sjóarinn síkáti – söngur og gleði í anda sjómanna enda eru þeir einhverjir hörðustu stuðningsmenn Grindavíkurliðsins. Verð pr. miða er 5.500 kr. Dagskráin er glæsileg:

 

Um veislustjórn og ræður kvöldsins sjá Guðmundur Ólafsson leikari og rithöfundur og Pétur H. Pálsson framkvæmdastjóri Vísis og fyrrverandi leikmaður Grindavíkur.
Jóhannes Kristjánsson eftirherma. 
Bjartmar Guðlaugsson tónlistarmaður tekur lagið.
Íslensk knattspyrna í 100 ár.
Kynning á nýjum leikmönnum.
Þjálfarar Grindavíkur fara yfir komandi sumar.
Spurningakeppni.
Uppboð.
Happdrætti.

Húsið opnar kl 19:00 og að sjálfsögðu mæta allir að hætti sjómanna.
Miðasala fer fram í Gula húsinu og hjá stjórnarmönnum knattspyrnudeildar. Einnig er hægt að panta miða á umfg@centrum.is