Héraðsdómaranámskeið verður haldið í Sókninni 3. hæð í höfuðstöðvum KSÍ fimmtudaginn 27. mars kl. 19:00. Námskeiðið er hugsað fyrir alla starfandi dómara og þá sem vilja öðlast réttindi héraðsdómara. Gunnar Jarl Jónsson FIFA dómari mun kenna á námskeiðinu.
Um er að ræða tveggja og hálfs tíma fyrirlestur. Ekkert próf en viðvera gefur réttindi til héraðsdómara og er námskeiðið ókeypis.
Lögð er áhersla á hagnýtar hliðar dómgæslunnar.
Skráning er hafin á magnus@ksi.is