Grindavík tekur á móti ÍBV í dag klukkan 18:00
Stelpurnar standa í baráttu við KR um sæti í efstu deild að ári. Þrjú stig er í KR og verður reynt að sækja þau í kvöld. ÍBV hefur komið á óvart í deildinni í ár og sitja öruggar í þriðja sætinu.
Fyrri leikur liðanna í eyjum fór 2-1 þar sem Grindavík komst yfir snemma í seinni hálfleik og hélt forystunni fram á 85. mínútu þegar heimastúlkur jöfnuðu og komust svo yfir á 90 mínútu. Þjálfari ÍBV er Jón Óli, fyrrum þjálfari Grindavíkur, og Elínborg Ingvarsdóttir hefur spilað með liðinu í sumar.