Grindavík tók á móti Leikni í sjöundu umferð 1.deild karla.
Þessi lið eiga sér ekki langa sögu í innbyrðis viðureignum, 4 leikir milli liðanna fyrir þennan leik þar sem Grindavík hafði unnið 3 og eitt jafntefli. Fjórði sigurinn kom í gær þar sem Grindavík vann leikinn 3-2.
Matthías kom Grindavík yfir á 7. mínútu eftir hornspyrnu. Var þetta eina markið á fyrstu 70 mínútum leiksins. Grindavík stjórnaði leiknum og bætti við tveimur mörkum 70. og 74. mínútu frá Juraj Grizelj og Alex Freyr Hilmarsson. Gestirnir komu hinsvegar sterkir inn í leikinn eftir það og skoruðu tvö mörk og gerðu þar með leikinn nokkuð spennandi. Sigurinn var hinsvegar okkar og Grindavík er komið með 3 stiga forskot í deildinni.
Það er ánægjulegt þegar litið er yfir töfluna að Grindavík hefur hingað til skorað 22 mörk en fengið aðeins 8 á sig, 14 mörk í plús og 10 mörkum fleira en næsta lið.
Næsti leikur hjá Grindavík er fimmtdaginn 27.júní þegar Selfoss kemur í heimsókn.