Hið árlega herrakvöld knattspyrnudeildar verður haldið föstudaginn 29. apríl í veitingahúsinu Vör.
Að þessu sinni verur bimsalt herrakvöld að hætti Bíbbans en á boðstólum verður glæsilegt sjávarréttahlaðborð. Þema kvöldsins verður Sjóarinn síkáti – söngur og gleði í anda sjómanna enda eru þeir einhverjir hörðustu stuðningsmenn Grindavíkurliðsins. Dagskráin er glæsileg:
Um veislustjórn og ræður kvöldsins sjá Guðmundur Ólafsson leikari og rithöfundur og Pétur H. Pálsson framkvæmdastjóri Vísis og fyrrverandi leikmaður Grindavíkur.
Jóhannes Kristjánsson eftirherma.
Bjartmar Guðlaugsson tónlistarmaður tekur lagið.
Íslensk knattspyrna í 100 ár.
Kynning á nýjum leikmönnum.
Þjálfarar Grindavíkur fara yfir komandi sumar.
Spurningakeppni.
Uppboð.
Happdrætti.
Húsið opnar kl 19:00 og að sjálfsögðu mæta allir að hætti sjómanna.
Miðasala fer fram í Gula húsinu og hjá stjórnarmönnum knattspyrnudeildar. Einnig er hægt að panta miða á umfg@centrum.is