Grindavík spilaði við Elliða í Mjólkurbikarnum í gær og fór með 2-o sigur af hólmi. Mörkin skoruðu þeir Rúnar Eysteins og Valur Hákonar.
Það verður svo sannkallaður „derby“ slagur á annan í páskum (6. apríl) þegar Grindavík og Keflavík eigast við í næstu umferð Mjólkurbikarsins.
Íslandsmótið hefst svo hjá báðum meistaraflokkum knattspyrnudeildarinnar þann 25. apríl. Stelpurnar eru mættar í Bestu-deildina og sækja Valskonur heim í fyrsta leik en strákarnir fara vestur á Ísafjörð sama dag og spila við bikarmeistara Vestra.
Þá er gaman að segja frá því að Grindavík á tvo fulltrúa í U-19 ára landsliði Íslands sem tekur nú þátt í æfingamóti í Portúgal, þá Helga Hafstein Jóhannsson og Eystein Rúnarsson.
Ísland mætir þar Bandaríkjunum, Portúgal og Marokkó dagana 24. mars – 1. apríl.

