Meistaraflokkur kvenna er staddur á austurlandi þar sem þær keppa við Fjarðabyggð og Hött. Leikurinn við Fjarðabyggð var leikinn í gær og endaði 4-1 fyrir Grindavík.
Ingibjörg Yrsa Ellertsdóttir og Darnelle Mascal skoruðu mörk Grindavíkur í leiknum en öll mörk leiksins voru skoruð í seinni hálfleik.
Grindavík er komið me 26 stig eftir 10 umferðir og sitja á toppi B riðils 1.deild kvenna.
Seinni leikurinn í þessu ferðalagi verður í dag klukkan 17:00 á Vilhjálmsvelli gegn Hetti.