Enn einn Risapottur

Ungmennafélag GrindavíkurKnattspyrna

Það verður enn einn risapottur í getraunum um helgina en potturinn að þessu sinni stefnir í 230 milljónir, Það gekk ekki alveg nógu vel um síðustu helgi en vinningurinn var undir 200kr á hlut og því ekki greiddur út. En það þýðir ekki að gráta Björn bónda heldur skal safna liði o.s.frv. Sala er hafin á hlutum í Risakerfi fyrir næstu helgi, hluturinn kostar 3000kr. og menn geta keypt eins marga hluti og þeir vilja. 

Þeir sem ætla að vera með eiga að leggja inná reikning 0143-05-60020, kt: 640294-2219 og senda staðfestingu á email bjarki@thorfish.is eða mæta upp Gula hús um helgina en það verður opið á laugardaginn milli kl 11 og 14. En það lokar fyrir sölu á risakerfinu kl 12.30 á laugardaginn
Reglur hafa verið samdar um kaup á hlutum í stóra kerfinu sem er sett í sölu hjá getraunaþjónustu Knattspyrnudeildar Grindavíkur.

Sala verður sett af stað í upphafi þeirrar viku sem ákveðið verður að vera með stórt kerfi. Sölu lýkur kl. 12:30 á laugardegi bæði á Facebook og uppí gula húsi. Eftir að sölu er lokið verður seðillinn fullunninn. Þetta er gert til þess að leyfa þeim að vera með sem vilja og geta þá gert sterkari seðil en ella yrði gert fyrir minni pening. Einn hlutur í kerfinu mun alltaf kosta 3.000 kr.- Verði vinningur á hlut innan við 200 kr.- verður hann ekki greiddur út og mun renna óskiptur til knattspyrnudeildarinnar.

Þeir sem óska eftir að vera áskrifendur að hlut í kerfi verða að láta vita í emaili á bjarki@thorfish.is eða staðfesta það uppí gula húsi á opnunartíma getraunaþjónustunnar í gula húsinu sem er frá 11:00 – 14:00.