Grindavík heldur áfram sigurgöngu sinni og nú var það Þróttur sem okkar menn lögðu 3-0
Það var fyrst og fremst góður fyrri hálfleikur sem lagði grunninn að sigrinum. Jósef og Juraj skoruðu tvö mörk með mínútu millibili, bæði stórglæsileg.
Guðfinnur Ómarsson, sem spilaði með Þrótti á síðasta tímabili, kom inn á 76.mínútu og skoraði síðasta mark leiksins á 88. mínútu.
Grindavík er því komið í þægilega stöðu á toppi deildarinnar og þrjú stig í Leikni eftir 6 umferðir. BÍ gæti komið upp að Grindavík en þeir eiga leik til góða sem fer fram á sunnudaginn.
Næsti leikur hjá okkar mönnum er hinsvegar 22.juní þegar Leiknir mætir til Grindavíkur.