Í kvöld mættust Víkingur og Grindavík í 5.umferð Pepsi deildar karla.
Leikurinn var harla lítil skemmtun og lítið um færi. Bestu færi Grindavíkur áttu Ólafur Örn í fyrri hálfleik þegar bjargað var af línu eftir skalla hans. Í seinni hálfleik var það Paul sem komst næst því að skora en skot hans fór framhjá.
Jákvæða úr leiknum var að markið hélst hreint í fyrsta skipti í sumar og var aldrei hætta á öðru.
Grindavík er því í 10. sæti eftir 5 umferðir og næsti leikur gegn Þór mánudaginn 30.maí. En næsti leikur liðsins er í bikarnum gegn KA 25.maí
Viðtal við Ólaf á fotbolti.net