Blikar kalla Stefán Inga heim úr láni

Ungmennafélag Grindavíkur Knattspyrna

Framherjinn Stefán Ingi Sigurðarson hefur leikið sinn síðasta leik með Grindavík í sumar í Lengjudeild karla. Stefán Ingi kom fyrr í sumar á láni frá Breiðablik. Samkomulagið milli Breiðabliks og Grindavíkur gilti til 10. ágúst en Stefán Ingi átti að fara til Bandaríkjanna í háskólanám um miðjan ágúst.

Vegna Covid-19 ákvað Stefán Ingi að fara ekki til Bandaríkjanna í haust og óskaði Grindavík eftir því að fá hann á láni út tímabilið. Breiðablik hefur hins vegar ákveðið að Stefán ljúki tímabilinu í Kópavogi.

Knattspyrnudeild Grindavíkur vill þakka Stefáni Inga kærlega fyrir sumarið. Hann stóð sig frábærlega með liðinu , skoraði 3 mörk í 6 leikjum og tók miklum framförum. Hann féll einnig frábærlega inn í leikmannahóp Grindavíkur. Óskum við Stefáni velfarnaðar hjá móðurfélagi sínu Breiðablik.