Bjössi Hreiðars: Það eru mörg lið um hituna

Ungmennafélag Grindavíkur Knattspyrna

„Ég tók þátt í Getraunadeildinni og mig minnir að það hafi verið skemmtileg deild. Lengjan er komin núna og það er mjög gott,” sagði Sigurbjörn Hreiðarsson, þjálfari Grindavíkur, við Fótbolta.net í gær um tíðindi dagsins en 1. deildin mun í sumar heita Lengjudeildin.

Grindvíkingar eru að undirbúa sig fyrir komandi tímabil í Lengjudeildinni og þeir unnu ÍR 2-0 í vikunni.

„Það voru tveir mánuðir og tuttugu dagar á milli leikja hjá okkur svo auðvitað voru hnökrar hér og þar. Það voru líka ágætis punktar. Við vorum bara ánægðir með að komast í fótbolta,” sagði Sigurbjörn en hann segir stefnuna á að endurheimta sætið í Pepsi Max-deildinni.

„Við ætlum að gera tilkall í að vera samkeppnishæfir um að komast upp úr Lengjudeildinni. Við teljum okkur vera með lið sem getur barist um það en það eru mörg lið um hituna.”

Lesa má viðtalið við Bjössa Hreiðars í heild sinni á vef fótbolta.net