Auka aðalfundur knattspyrnudeildar í kvöld

Ungmennafélag GrindavíkurKnattspyrna

Auka aðalfundur knattspyrnudeildar UMFG verður haldinn í dag, mánudaginn 30. september. Fundurinn fer fram í Safamýri og hefst kl. 18:00.

Samþykkt var á aðalfundi deildarinnar í mars að halda auka aðalfund vegna kosningu stjórnar við lok tímabils. Á dagskrá er því aðeins eitt mál, að öðrum málum undanskildum.

Dagskrá fundar:

1. Stjórnarkjör.
2. Önnur mál.

Stjórn knattspyrnudeildar UMFG.