Anton Ingi nýr þjálfari kvennaliðs Grindavíkur

Ungmennafélag Grindavíkur Knattspyrna

Anton Ingi Rúnarsson er nýr þjálfari meistaraflokks kvenna hjá Grindavík og tekur hann við starfinu af Jóni Ólafi Daníelssyn sem hefur stýrt liðinu undanfarin tvö ár. Anton Ingi er 26 ára gamall og hefur verið aðstoðarþjálfari liðsins undanfarin tvö tímabil.

Anton Ingi gerir árssamning við Knattspyrnudeild Grindavíkur en Anton er mjög efnilegur þjálfari og hefur gert mjög góða hluti sem þjálfari hjá yngri flokkum félagsins.

„Ég er mjög glaður með að fá þetta tækifæri hjá mínu uppeldisfélagi og er afar spenntur fyrir þessari áskorun,“ segir Anton Ingi. „Ég er búinn að læra gríðarlega mikið af Jóni Óla á síðustu tveimur árum og tek við góðu búi. Við erum með góðan kjarna af leikmönnum og ég er mjög spenntur að hefjast handa.“

Knattspyrnudeild Grindavíkur býður Anton Inga velkominn til starfa í nýrri stöðu hjá félaginu.