Æfingar heimilar í knattspyrnu fullorðinna – Virða þarf 2 metra nándarmörk

Ungmennafélag Grindavíkur Knattspyrna

KSÍ fundaði í dag, þriðjudag, með fulltrúum Almannavarna um málefni knattspyrnuhreyfingarinnar og þeirrar stöðu sem nú er uppi í samfélaginu vegna Covid-19.  Meðal umræðuefnis voru æfingar og keppnisleikir fullorðinna jafnt sem yngri iðkenda. Stjórn KSÍ kom saman í kjölfarið og samþykkti að fresta leikjum í meistara- og 2. og 3. flokki karla og kvenna frá 5. ágúst til og með 7. ágúst.

Von er á minnisblaði frá almannavörnum og sóttvarnarlækni í dag, þriðjudag, og eru vonir bundnar við að minnisblaðið svari flestum spurningum KSÍ og knattspyrnuhreyfingarinnar um mótahald og æfingar.  Í kjölfar minnisblaðsins mun KSÍ skoða leiðir til lausna í samráði við sóttvarnaryfirvöld og ræddi stjórnin m.a. um að breyta tilmælum KSÍ um Covid varúðarráðstafanir (viðauki við handbók leikja) í bindandi ákvæði.

Jafnframt var ítrekað að eins og staðan er nú eru æfingar knattspyrnuliða heimilar ef 2 metra nándarmörk eru virt og búnaðar sótthreinsaður.