Góður árangur á vormóti og páskamóti í júdó.
Laugardaginn 16. apríl fór fram Vormót JSÍ og kepptu fimm drengir frá Grindavík:
Marcin Ostrowski fékk gull í -50kg 13-14 ára.
Sigurpáll Albertsson fékk gull í -90kg 15-19 ára.
Sólon Rafnsson fékk gull í -60kg 15-16 ára.
Reynir Berg Jónsson fékk silfur í -60kg 15-16 ára.
Guðjón Sveinsson fékk silfur í -73kg 15-16 ára.
Laugardaginn 30. apríl var svo páskamót JSÍ haldið og kepptu aðeins tveir Grindvíkingar þar:
Marcin Ostrowski fékk gull í -50kg 13-14 ára.
Guðjón Sveinsson fékk silfur í -66kg 15-19 ára.
20-22. maí næstkomandi keppa þeir Björn Lúkas Haraldsson, Guðjón Sveinsson og Sigurpáll Albertsson á Norðurlandamóti í Osló í Noregi. Þar hefur Björn Lúkas m.a. titil að verja. Óskum þeim góðs gengis!