Brons á RIG

Ungmennafélag Grindavíkur Judó

Í dag fór fram Reykjavík Judo Open, sem er liður í dagskrá Reykjavík International Games og voru 3 keppendur frá Grindavík.

Mótið í ár var eitt sterkasta júdómót á Íslandi frá upphafi og voru 63 keppendur skráðir, þar af 15 erlendir. Á meðal erlendra keppenda var Ólympíumeistarinn Tagir Khaibulaev.

3 Grindavíkingar mættu til leiks, þeir Björn Lúkas Haraldsson, Guðjón Sveinsson og Guðmundur Ingi Hammer Kjartansson, og vann þar Guðmundur Ingi til bronsverðlauna í -66kg flokki.


 

Björn Lúkas keppti í -81kg flokki. Þar voru 11 keppendur skráðir og raðaðist flokkurinn í útsláttarkeppni. Lúkas tapaði fyrstu glímunni sinni á kasti og vegna úrslita annarra keppenda í flokknum fékk hann enga uppreisnarglímu.

Guðjón Sveinsson keppti í -73kg flokki. Þar voru 12 keppendur skráðir og raðaðist flokkurinn í útsláttarkeppni. Guðjón vann fyrstu glímuna á kasti en tapaði annarri á sama hátt. Hann fékk uppreisnarglímu en tapaði henni einnig á kasti.

Guðmundur keppti í -66kg flokki. Þar voru 6 keppendur skráðir og raðaðist flokkurinn í tvo þriggja manna riðla. Guðmundur vann fyrstu glímuna á armlás, en tapaði annarri á kasti en komst þó upp úr riðlinum í undanúrslit. Hann tapaði þeirri glímu á kasti, og hafnaði þar með í þriðja sæti.

 

 

Á myndinni sést Guðmundur lengst til hægri.