Grindavík og Víkingur mætast í 32-liða úrslitum Borgunarbikarsins í kvöld. Leikurinn fer fram á gervigrasinu í Laugardal og hefst klukkan 20:30
Grindavík skaust í 32 liða úrslitin með glæsilegum 4-1 sigri á ÍA 13 maí. Víkingur kemur, líkt og önnur Pepsi deildarlið, beint inn í 32 liða úrslitin.
Bæði lið hafa byrjað ágætlega í sumar, Víkingur um miðja deild og sömuleiðis Grindavík þó við eigum leik til góða, fróðlegt verður því að sjá samanburðinn á deildunum tveimur í kvöld.
Stuðningsmannaklúbbur Grindavíkur, Stinningskaldi, ætlar að rifja upp gamla takta og fá Gunna í Salty Tours til að skutla þeim í bæinn og heim aftur, skráning á facebook síðu Stinningskalda